Daði Ármannsson, M.Sc. nemi í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík, vinnur að verkefni er miðar að þróun nýrrar leiðasmíðiaðferðar fyrir tölvunet. Verkefnið er meistaraverkefni Daða, og vinnur hann það í samstarfi við Netsetur Háskólans í Reykjavík og Gervigreindarsetur Háskólans í Reykjavík. Daði nýtur aðstöðu Frumkvöðlaseturs Austurlands við úrlausn verkefnisins. Tilgangur verkefnisins er að útbúa skilvirkari leiðasmíðiaðferð fyrir tölvunet, þ.e. hefðbundin þráðræn net, þráðlaus net, og blöndu þráðrænna og þráðlausra neta. Leiðasmíði er grunnþjónusta allra tölvuneta, og miðar að því að uppgötva leiðir á milli tölva sem netinu eru tengdar, með það fyrir augum að senda á milli þeirra skilaboð. Hefðbundnar leiðasmíðiaðferðir, eins og þær sem gjarnan eru notaðar í Internetinu, byggja leiðir og þekkja þegar þeirra er þörf. Hins vegar krefst þetta mikilla auðlinda, sem eru að skornum skammti í netum sem rutt hafa sér til rúms á síðustu árum, og kölluð eru „ad hoc” net. Þau net samanstanda af þráðlausum tölvum sem hver og ein er hreyfanleg. Því hafa menn brugðið á það ráð að byggja leiðir eingöngu þegar þeirra er þörf. Þetta krefst einnig mikilla auðlinda, sér í lagi þegar hreyfanleiki tölva í netinu er mikill.
Lesa meira