Geymsla og flutningur á lifandi leturhumri.
Markmið verkefnisins er að athuga hvort möguleiki er á að veiða, geyma og flytja lifandi humar á hagkvæman hátt. Í skýrslunni er varpað ljósi á helstu aðferðir sem hægt er að nota við veiðar, geymslu og flutning. Kannað var hvort markaður fyrir lifandi humar sé eftirsóknarverður þegar tekið er tillit til framboðs og eftirspurnar. Að lokum var metið hvort fjárhagslegur ávinningur væri af verkefninu.
Frumkvöðlasetur Austurlands ehf. var ábyrgðaraðili verkefnisins en var það unnið í samvinnu við AVS Rannsóknarsjóð, Rannsóknastofnun Fiskiðnaðarins, Skinney Þinganes hf. og nemendur Tækniháskóla Íslands.
Tæknigreining var unnin á mismunandi veiðum, geymsluaðferðum og umbúðum ásamt flutningi. Bornir voru saman kostir og gallar trollveiða annars vegar og gildruveiða hins vegar. Niðurstaðan var að stunda trollveiðar í upphafi tilrauna.
Þrjár mismunandi geymsluaðferðir í landi voru skoðaðar:
- Geymsla í körum, þar sem pækli er hringdælt um lokað kerfi.
- Geymsla í bökkum, þar er humarinn flokkaður eftir stærð í bakka sem síðan er raðað upp og kældur sjór látinn leka yfir stæðuna.
- Sjókví, þar er ákveðið svæði afmarkað við strendur eða í höfnum með girðingu sem humarinn kemst ekki út um.
Niðurstaðan var því sú að gera tilraunir með geymslu á humri í körum.
Mynd 1. Geymslukar frá Sæplast h/f. Óskar Jónsson athugar líðan humarsins
Þrjár mismunandi gerðir umbúða voru skoðaðar; frauðplastkassar, bylgjuplastkassar og pappakassar. Ein tegund frauðplastkassa er nógu djúp til að humarinn geti staðið upp á endann sem talið er að henti humrinum í flutningi og þessi kassi því tilvalinn.
Gerðar voru tilraunir með ákveðnar aðferðir við að geyma og meðhöndla lifandi humar. Bornar voru saman lífslíkur humars sem veiddur var á mismunandi dýpi í troll. Einnig voru bornar saman geymsluaðferðir í landi, þ.e. hvort humarinn er geymdur í einni kös eða hverjum og einum komið fyrir í hólk. Allur humarinn var geymdur í sama geymslukarinu. Í tilrauninni kom í ljós að humar sem veiddur er á minna dýpi lifir lengur. Eftir 13 sólarhringa geymslu voru alls 28% lifandi af þeim humri sem geymdur var í hólkum. Alls voru 18% lifandi af þeim sem hafður var í kös. Tilraunir gáfu til kynna að hægt er að geyma hann í 2 vikur án þess að það komið niður á gæðum humarsins. Til þess að ná ásættanlegum árangri þarf geymslutíminn að vera lengri. Gera þarf frekari tilraunir og hugsanlega breyta ýmsum atriðum varðandi geymsluna og veiðarnar til að komast að því hvort það sé mögulegt. Lengri undirbúningstíma þarf fyrir geymsluna s.s. að leyfa lífrænum síum að ná fullri virkni.
Mynd 2. Humar í hólk.
Hvað veiðarnar varðar er lagt til að prófað verði að veiða í gildrur og gera prófanir á sérútbúnum gildrubát. Þessi veiðiaðferð er alþekkt og mest notuð þegar halda á lífi í humri. Ef útgerðin er ekki tilbúin að leggja í þessar breytingar þá er möguleiki á að haga trollveiðunum á annan hátt. Þá er nauðsynlegt að toga hægar og í skemmri tíma í senn. Á þann hátt má koma í veg fyrir að sá mikli þrýstingur sem myndast í trollinu skaði humarinn því það sem einkenndi tilraunirnar var að humarinn var illa á sig kominn eftir meðferð trollsins.
Samkvæmt upplýsingum frá starfsmanni SÍF á Spáni um verð á mörkuðunum Mercabarna og Merkamadrid í nóvember 2004 má gera ráð fyrir þrefalt hærra verði fyrir ferskan humar en frosinn. Þetta þýðir að útflutningsverðmæti 1000 tonna af heilum humri myndi aukast um 2 milljarða fari verðið úr 1.000 kr./kg í 3.000 kr./kg. Samkvæmt sömu upplýsingum er verð fyrir lifandi humar 5-12% hærra en fyrir ferskan. Þetta háa verð fyrir ferska humarinn gerir það að verkum að áhætta minnkar af útflutningi á afurðinni þar sem selja má humarinn sem drepst ferskan. Það að halda humrinum á lífi gefur þann möguleika að stýra framboði inn á markaðinn hvort sem hann yrði síðan seldur lifandi eða ferskur.
Niðurstaða verkefnisins er sú að nauðsynlegt er að flytja verkefnið yfir á næsta stig þróunarferlisins og setja í gang tilraunavinnslu sem nái til veiða, vinnslu og markaðssetningu á ferskum / lifandi humri.
Samkvæmt skýrslunni og gefnum forsendum er möguleiki að veiða, geyma og flytja lifandi humar á hagkvæman hátt.