Ari Þorsteinsson og Fruman hljóta hvatningarviðurkenningu
Á aðalfundi Þróunarfélags Austurlands sem haldinn var í gær hlaut Frumkvöðlasetur Austurlands og Ari Þorsteinsson framkvæmdastjóri setursins hvatningarviðurkenningu frá Þróunarfélaginu, Frumkvöðlasetrið hlaut viðurkenninguna fyrir að innleiða áhugaverða nýjung í atvinnuþróunarstarf á Austurlandi og Ari fyrir stjórnun setursins af miklum myndarskap. “Ari Þorsteinsson verkfræðingur hefur stýrt uppbyggingu Frumkvöðlasetursins frá stofnun þess og farist það afar vel úr hendi. Ari býr yfir fagþekkingu og reynslu sem nýtist setrinu vel, er baráttuglaður og bjartsýnn að eðlisfari og á gott með að sjá um öll þau vandasömu samskipti sem óhjákvæmilega fylgja rekstri Frumkvöðlasetursins. Að auki er Ari hugmyndaríkur og skipuleggur störf sín vel og hafa þeir eiginleikar hans átt drjúgan þátt í því að á vegum Frumkvöðlasetursins er nú rekið fjölbreytt og kröftugt nýsköpunar- og þróunarstarf” sagði Auður Anna Ingólfsdóttir stjórnarmaður Þróunarfélagsins við afhendingu viðurkenningarinnar.
Smári Geirsson bæjarstjóri Fjarðarbyggðar hlaut hvatningarverðlaunin í ár og auk Frumkvöðlasetursins hlutu hvatningarviðurkenningar Kristinn Pétursson hjá Gunnólfi ehf og Hótel Framtíð á Djúpavogi sem fékk viðurkenninguna fyrir markvissa uppbyggingu og þróun á ferðaþjónusturekstri á Djúpavogi.