Þjónustan
frumkvöðlasetrið veitir frumkvöðlum faglegar leiðbeiningar og ráðgjöf og aðstoðar við að koma á samskiptum við sérfræðinga þar sem það á við. Þeir frumkvöðlar sem fá aðstöðu á setrinu fá eigið herbergi með síma, tölvu, tölvutengingu og skrifstofuhúsgögnum.
frumkvöðlasetrið er með skrifstofuaðstöðu fyrir aðila s.s. vísindamenn og námsmenn sem eru að vinna að verkefnum, rannsóknum, athugunum og / eða ráðgjöf .
frumkvöðlasetrið veitir faglegar leiðbeiningar og ráðgjöf til aðila utan setursins og aðstoðar við að koma á samskiptum við sérfræðinga þar sem það á við.
frumkvöðlasetrið er leiðbeinandi varðandi fjármögnun verkefna og viðskiptahugmynda og veitir upplýsingar um lánastofnanir, sjóði og styrki.
frumkvöðlasetrið tekur að sér að stýra verkefnum fyrir fyrirtæki og stofnanir.
frumkvöðlasetrið er með mjög öflugt tengslanet og í nánu samstarfi við starfsmenn; Þróunarstofu Austurlands, Impru, Iðntæknistofnunar, Rannsóknarstofnun Fiskiðnaðarins, Útflutningsráðs Íslands, Viðskiptaþjónustu Utanríkisráðuneytis, Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, Byggðastofnunar og annarra þjónustustofnana atvinnulífsins.