Verkefni
Ræktun

Ræktun á ám og vötnum til stangveiða í Austur-skaftafellsýslu.

Laxanes ehf. fékk aðstöðu hjá Frumkvöðlasetri Austurlands til að vinna að athugun á því hvort hagkvæmt sé að rækta og markaðssetja ár og vötn í Austur –Skaftafellsýslu til stangveiða.
Eigendur verkefnisins vilja meina að um töluvert vannýtta möguleika sé að ræða. Fyrir utan að nýtast við áframhaldandi uppbyggingu á þeirra eigin félagi Veiðifélaginu Laxanes ehf. mun það nýtast ferðaþjónustuaðilum og landeigendum í sýslunni til atvinnuuppbyggingar.
Verkefnið er unnið í samráði við Búnaðarsamband A- Skaft, landeigendur og ferðaþjónustuaðila. Veiðifélagið Laxanes leiðir verkefnið og sér um stjórnun þess. Lokatakmark verkefnis er að fyrir liggi mat á hversu hagkvæmt sé að rækta og markaðssetja ár og vötn í Austur skaftafellsýslu fyrir stangveiði. Að komist verði að hvort stangveiði í A-skaftafellsýslu sé góður kostur í afþreyingu í ferðaþjónustu.
Tímabil: október 2003 – maí 2004.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica