Verkefni
Þekking

Könnun á þekkingarþörf í Austur -Skaftafellsýslu

Fræðslunet Austurlands í samstarfi við Frumkvöðlasetur Austurlands, Þróunarstofu Austurlands og ýmsa aðila í Hornafirði eru að vinna að viðamikilli könnun á þörf fyrir fræðslu og menntun fyrir almenning og atvinnulíf í Sveitarfélaginu Hornafjörður.
Kveikjan að þessari vinnu er að sérstakur starfshópur á Hornafirði ályktaði um að því þyrfti að huga sérstakleg að styrkja atvinnulíf á jaðarsvæðum virkjana- og stóriðjuframkvæmda. Í framhaldi af vinnu starfshópsins var ákveðið að ráðast í að kanna hvernig fræðsla og menntun gæti eflt atvinnulíf á Hornafirði og þar kemur Fræðslunetið til skjalanna. Við beitum sérstakri aðferð sem gengur undir nafninu Markviss (uppbygging starfsfólks) við að byggja upp fræðslu og menntun með skipulegum hætti.
Og til að gera sér grein fyrir því hvaða menntun atvinnulíf og almenningur og Hornafirði óskar eftir þá var ákveðið að gera áður nefndar kannanir.
Þær verða tvenns konar:
Símakönnun þar sem einstaklingar eru spurðir ýmissa spurninga um menntun þ.m.t. símenntun. Úrtak er 250 einstaklingar, bæði í þéttbýli og dreifbýli Hornafjarðar.
Könnun meðal forstöðumanna fyrirtækja. Ætlunin er að heimsækja 20 fyrirtæki og stofnanir og á Hornafirði og ræða við forstöðumenn þeirra til að kannað þörf fyrir fræðslu og menntun. Gert er ráð fyrir að niðurstöður könnunar verði kynntar á viku símenntunar sem haldin verður í september 2004

Tímabil janúar – september 2004

Þetta vefsvæði byggir á Eplica