Fuglarnir farnir að týnast til landsins
Þessa dagana er nánast allt sem minnir Hornfirðinga á að vorið sé að koma, góð veður, hlýindi og gróður að byrja að sjást. Farfuglarnir eru að byrja að týnast til landsins. Núna í vikunni sá Björn Arnarson æðarkóng sem var að spóka sig á höfninni út af bræðslunni Hann segir að æðarkóngar komi alltaf hér inn í höfnina í mars og séu þá í fylgd með æðarfugli.
Æðarkóngar parast oft æðarkollum og í vikunni var einn kynblendingur, afkvæmi kollu og kóngs í höfninni. Kynblendingurinn er grár á baki og segir Björn að hann sé auðþekkjanlegur í æðarhópnum.
Trjámáfur,flækingur frá Ameríku, fannst hér nýlega og segir Björn að það sé 15. trjámáfurinn sem sést hefur hér á landi.





Skrifa athugasemd