Mikið af álftum og gæsum
Óhemjumikið er af gæsum á túnum bænda í Hornafirði þessa dagana og auðséð að þær eru meðvitaðar um að gæsaveiði sé bönnuð á vorin, svo rólegar eru þær og nýta sér vel nýgræðinginn á túnunum. Álftapör skipta tugum meðfram þjóðveginum í Austur Skaftafellssýslu og eru margar álftirnar mjög gæfar. Álftapar, líklegast það sama sem í mörg ár hefur verpt rétt við þjóðveginn í landi Krossbæjar í Nesjum, var í gær sumardaginn fyrsta önnum kafin við hreiðurgerð eða að laga til í gamla hreiðrinu. Björn Arnarson fuglaáhugamaður segir að álftirnar séu byrjaðar að verpa og 11. apríl fann hann fyrsta hreiðrið sem hann segir að sé heldur í fyrra lagi.
Krían er komin enda voru margir farnir að bíða komu hennar. Björn segir að fyrsta krían hafi komið 21.apríl í fyrra og 20.apríl árið 2002 svo það er von að menn hafi verið orðnir óþolinmóðir.





Skrifa athugasemd