Fuglar
Elrigreipur undir Eyjafjöllum (mynd:Björn Arnarson)
Elrigreipur undir Eyjafjöllum (mynd:Björn Arnarson)

17.10.2003 Fuglar

Elrigreipur kemur frá Ameríku.

Óvenju mikið hefur sést af sjaldgæfum amerískum fuglum hér á landi í haust og eins er mikið af þeim fuglum sem heimsækja okkur annað slagið segir Björn Arnarson fuglaáhugamaður á Höfn, þetta er mun meira en ég hef séð hér áður. Þegar Björn var á ferð undir Eyjafjöllum fyrir viku síðan sá hann fugl sem ekki hefur sést áður hér á landi. Þetta var Elrigreipur sem er ný fuglategund fyrir Evrópu og kemur frá Ameríku. Fuglinn er venjulega kallaður Grípur, en það nafn fékk hann af því að hann nærist eingöngu á flugum sem hann grípur í loftinu. Aðrir sjaldgæfir fuglar sem komið hafa frá Ameríku eru Setrustoppa og Álmkraki.

Unnið er að því að koma Fuglaathugunarstöð á laggirnar á Hornafirði og sagði Björn að búið væri að senda skýrslu til fjárlaganefndar og nú væri beðið eftir svari hennar. Björn fór í haust ásamt fleirum að skoða nokkrar erlendar fuglaathugunarstöðvar og kynna sér starfsemi þeirra.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica