Fuglar
Holudúfa á Hala í Suðursveit (mynd:Björn Arnarson)
Holudúfa á Hala í Suðursveit (mynd:Björn Arnarson)

24.11.2003 Fuglar

Holudúfa á Hala í Suðursveit

Holudúfa sást á Hala í Suðursveit fyrir helgina og segir Björn Arnarson fuglaskoðunarmaður að þetta sé í fyrsta sinn sem holudúfa sést hér á landi svo staðfest sé. Líkur eru á að holudúfa hafi sést á þessum sama stað í sumar en ekki náðist að staðfesta það og telur Björn ekki ólíklegt að þarna sé um sama fugl að ræða og dúfan hafi verið hér á landi síðan í sumar.

Holudúfur eru algengar í Evrópu, þær eru að eðlisfari mjög styggar og þessi var vel vör um sig en þó tókst að nálgast hana í rólegheitum.
Dúfan hefur haldið sig mest við útihúsin á Hala og þar í kring um helgina og telur Björn að hún geti sem best lifað hér í vetur ef veður verða skapleg og hún nær í nægilegt æti. Ekki er vitað hvort kynið þetta er þar sem ekki er neinn útlitsmunur á þeim. Þess má geta að það komu fjórir fuglaáhugamenn akandi frá Reykjavík um helgina til að skoða holudúfuna.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica