Fyrirtækjaskrá

Hótel Skaftafell
Hótel Skaftafell

Fosshótel Skaftafell, Öræfum

Hótel Skaftafell er í Freysnesi í Öræfasveit. Í Öræfum er stórbrotin náttúra og stendur hótelið við rót Svínafellsjökuls. Fallegur veitingastaður með bar er á hótelinu. Á efri hæð hótelsins er góður funda- og ráðstefnusalur auk koníaksstofu. Skammt frá er bensínsala og tjaldstæði.

Hótel Skaftafell er í Freysnesi í Öræfasveit. Það er við hringveginn um fjóra km. frá þjóðgarðinum í Skaftafelli og er því vel staðsett fyrir ferðamenn. Í Öræfum er stórbrotin náttúra og stendur hótelið við rót Svínafellsjökuls. Hótel Skaftafell er með 63 herbergi með baði. Fallegur veitingastaður með bar er á hótelinu. Á efri hæð hótelsins er góður funda- og ráðstefnusalur auk koníaksstofu. Skammt frá er bensínsala og tjaldstæði.

Veitingastaðurinn tekur 90-100 manns í sæti og er honum skipt í tvennt. Annað veitingarýmið er tilvalið fyrir stóra hópa á meðan hitt rýmið býður upp á meiri ró og næði fyrir einstaklinga.
Matseðillinn er fjölbreytilegur og leggjum við mikið upp úr að hafa heilsusamlegan mat á boðstólnum og ferskt hráefni úr næsta nágrenni.  Á sumrin bjóðum við uppá heilsusamleg salöt, súpur og fiskihlaðborð.


Þjónustuflokkar fyrirtækis Tengiliður fyrirtækis
Ferðaþjónusta
Gisting
Veitingahús og skemmtanir
Hótel
Veitingasala dreifbýli


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica