Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu
> Fara beint á vef skólans
Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu býður upp á almennt bóknám en auk þess er lögð áhersla á starfsnám í samræmi við eftirspurn hverju sinni, fullorðinsfræðslu og símenntun.
- Heimilisfang: Nýheimum
- 780 Hornafirði
- Sími: 470 8070
- Fax: 470 8071
- Netfang: fas@fas.is
- Heimasíða: www.fas.is
Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu er um 200 nemenda skóli. Í skólanum er lögð áhersla á að þjóna þörfum nemenda á persónulegan hátt með sveigjanlegu námsframboði. Fjarnám og tölvutengt nám er mikilvægur hluti náms við skólann og fer sífellt vaxandi. Skólinn var stofnaður árið 1987 af ríkinu og sveitarfélögum í Austur-Skaftafellssýslu.
Skólameistari framhaldsskólans er Eyjólfur Guðmundsson.