Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
skolaferd_252
skolaferd_252
Mynd 2 af 2
1 2

Upp á jökul og vorhátíð Heppuskóla

03.05.2007

Miðvikudaginn 9. maí leggja nemendur í 10. bekk af stað frá Heppuskóla í ferð á Vatnajökul. Áætlað er að koma til baka daginn eftir. Gist verður í svefnpokaplássi í Jöklaseli í tvær nætur. Farið verður í útsýnisferð á jöklinum ásamt selflutningi í skíðabrekkur á jeppum Ákveðið hefur verið að halda vorhátíð nemenda í Heppuskóla að Hrollaugsstöðum föstudaginn 11. maí n.k. Að hátíðinni standa Heppuskóli og Félagsmiðstöðin Þrykkjan. Að sögn Guðmundar Inga Sigbjörnssonar skólastjóra þá verður rútuferð frá tjaldstæðinu á Höfn kl. 19:15 og til baka frá Hrollaugsstöðum kl. 00:15. Einnig er akstur í sveitirnar í tengslum við hátíðina.

Boðið er upp á grill og síðan er ball með hljómsveitinni PARKET ásamt Stjána. Aðgöngumiði inn á vorhátíðina gildir einnig sem happdrættismiði þar sem ýmsir góðir vinningar eru í boði. Guðmundur Ingi vildi koma á framfæri þakklæti til þeirra fyrirtækja í sveitarfélaginu sem styrktu vorhátíðina.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica