Skólastarfið komið á fullt hjá yngstu krökkunum
Nú er skólastarfið komið á fullt á yngsta stiginu og hefur það farið vel af stað. Í 1. bekk eru 24 nemendur í einni bekkjardeild og hefur mæting þeirra vakið athygli því hver einasti nemandi 1. bekkjar hefur mætt fyrstu vikurnar og lofar það góðu með framhaldið. Í 2. bekk eru 38 nemendur í tveimur bekkjardeildum og í 3. bekk eru 35 nemendur í tveimur bekkjardeildum. Margt hefur verið til gamans gert í skólabyrjun. Fyrst ber að telja berjaferð í Haukafell sem tókst frábærlega í yndislegu veðri og ekki spillti fyrir að það fundust fullt af berjum sem er ekki endilega vaninn í berjaferðum hér um slóðir. Svo eru það fleiri haustverk sem standa til en hin árlega kartöfluupptaka hefur dregist en það stendur vonandi allt til bóta. Svo er einnig verið að sinna bóknámi sem tengist líka því sem er að gerast í náttúrunni enda hefur veðrið verið hlýtt og gott og tilvalið til útivistar.
Bæði starfsmenn og nemendur líta því björtum augum á starfið framundan í nýjum sameinuðum Grunnskóla Hornafjarðar.



