Unglingarnir á leið í gönguferð
Skólastarf á unglingastiginu er að komast í fullan gang núna þessa dagana. Undirbúningur fyrir legókeppnina er hafinn og taka tvö lið úr grunnskólanum þátt í henni, annað úr 9. bekk og hitt úr 7. bekk. Legó hönnunarkeppnin 2007 fer fram laugardaginn 10. nóvember í Öskju við Sturlugötu. Nemendur skólans stóðu sig mjög vel í fyrra.
Fjáröflun 9. bekkjar fyrir námsferð að Laugum í Sælingsdal er hafin og hafa nemendur opnað sjoppu og selja þar nýbakað bakkelsi og ýmislegt annað við góðar undirtektir samnemenda sinna.
Gönguferð nemenda og kennara er á morgun 11. september og verður lagt af stað frá Friðsæld, malarnámunni og gengið meðfram fjallinu að Bergárfossi, þaðan áfram að Selmýrarhrygg þar sem göngunni lýkur með pylsugrilli.
Nýnemaballið er áætlað 20. september og margt annað er í bígerð eins og t.d. heimsókn Magnúsar Stefánssonar á vegum Marita með forvarnarverkefni.



