Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
skolabyrjun_003_a_vef
skolabyrjun_003_a_vef
Skólabyrjun 2007
Mynd 3 af 3
1 2 3

Námskeið um tilfinningar fyrir grunnskólanemendur

13.09.2007

Nemendum í Grunnskóla Hornafjarðar gefst tækifæri til að taka þátt í námskeiði er kallast Baujan-tilfinninganámskeið. Námskeiðið snýst um að byggja upp þekkingu á tilfinningum og þjálfa leiðir til sjálfstyrkingar og sjálfstjórnar. Markmiðnámskeiðsins er að þátttakendur læri undirstöðuatriði í tilfinningavinnu ásamt slökunaröndun til sjálfshjálpar og séu færari um að stjórna líðan sinni, hegðun og aðstæðum og að þátttakendur eigi auðveldara með að setja sig í spor annarra. Námskeiðið leggur til góða þekkingu á mannlegum tilfinningum sem þátttakendur geta síðan nýtt sér áfram.

Um forvarnargildin segir "bestu forvarnir eru að læra á sjálfa/n sig, tilfinningar og líðan og að geta brugðist rétt við aðstæðum og umhverfi. Er þá minni hætta á að áföll og erfiðleikar fari illa með einstaklinginn". Boðið er nú upp á Baujuna í annað sinn í Grunnskóla Hornafjarðar en námskeiðið er fastur liður í mörgum skólum landsins. Námskeiðið hefur einnig verið haldið í nokkrum félagasamtökum og á vinnustöðum fyrir fullorðna. Reynslan hefur verið sú að allir læra eitthvað og fara þátttakendur af námskeiði sem sterkari einstaklingar með meiri möguleika til sjálfshjálpar.

Fyrst um sinn verður námskeiðið boðið nemendum í 7. og 10. bekkjum skólans en einungis komast fjórir á hvert námskeið. Þeir sem vilja taka þátt skrá sig hjá umsjónarkennurum eða kennurum Baujunnar en námskeiðið er val hvers nemanda og fer fram á skólatíma. Hver hópur hittist 1-2 sinnum í viku í sex skipti. Kennarar Baujunnar og umsjónarkennarar sjá um að forgangsraða umsækjendum.

Allar frekari upplýsingar fást á skólatíma fyrir; 10. bekk hjá Ragnhildi Jónsdóttur náms- og starfsráðgjafa í síma 478-1595 eða 891-6732. og fyrir 7. bekk hjá umsjónarkennurum og Þórhildi Kristjánsdóttur sérkennara í síma 478-1142. Sjá einnig www.baujan.is og upplýsingar sem nemendum 10. bekkja hafa verið afhentar.

 

 

 


 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica