Kynningafundir í Grunnskólanum
Fimmtudaginn 27. september eru kynningafundir fyrir foreldra í grunnskólanum sem hér segir.
Nesjaskóla kl. 17:00
Hafnarskóla kl. 18:00
Heppuskóla kl. 20:00
Við hvetjum foreldra til að mæta vel og kynna sér starfið í grunnskólanum. Gott samstarf heimilis og skóla skilar sér alltaf í betra gengi nemenda í skólanum.
Í tengslum við kynningafundinn kemur út fyrsta fréttabréf skólans og er það tileinkað Uppeldi til ábyrgðar. Þar segjum við í fáum orðum frá hugmyndafræðinni, þeim markmiðum sem við stefnum að og hvaða leiðir eru farnar að þeim. Við sendum fréttabréfið bæði heim í töskupósti og tölvupósti auk þessa sem hægt er að nálgast það á hér.



