Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
jol_i_skokassa_12
jol_i_skokassa_12
Mynd 3 af 8
1 2 3 4 5 6 7 8

Jól í skókassa

30.10.2007

Í gær hittust nemendur og foreldrar á yngsta stigi grunnskólans og gengu frá jólapökkum í skókassa. Margir nemendur mættu og heill haugur af jólapökkum safnaðist. Þó enn séu tæpir tveir mánuðir í jól þá er ekki seinna vænna en huga að jólagjöfum sem fara erlendis en þessir jólapakkar verða sendir til Úkraínu.

"Jól í skókassa" er alþjóðlegt verkefni sem felst í því að fá börn jafnt sem fullorðna til þess að gleðja önnur börn sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika með því að gefa þeim jólagjafir. Gjafirnar eru settar í skókassa og til þess að tryggja að öll börnin fái svipaða jólagjöf er mælst til þess að tilteknir hlutir séu í hverjum kassa. Fyrir jólin 2004 ákvað hópur ungs fólks innan KFUM og KFUK að láta reyna á verkefnið hér á landi. Þá voru undirtektirnar frábærar og söfnuðust rúmlega 500 kassar það árið. Verkefnið hélt svo áfram að spyrjast út og árið 2005 urðu skókassarnir 2600. Sú tala nær tvöfaldaðist síðustu jól þegar tæplega 5000 gjafir bárust. Það hefur því verið ákveðið að halda verkefninu áfram og vonumst við til þess að safna enn fleiri skókössum þetta árið.

Í ár, líkt og síðustu þrjú ár, verða skókassarnir sendir til Úkraínu. Í Úkraínu búa um 50 milljónir manna. Atvinnuleysi er þar mikið og ástandið víða bágborið. Á því svæði þar sem jólagjöfunum verður dreift er allt að 80% atvinnuleysi og þar ríkir mikil örbirgð. Íslensku skókössunum verður meðal annars dreift á munaðarleysingjaheimili, barnaspítala og til barna einstæðra mæðra sem búa við sára fátækt. Kirkjan í Úkraínu er rússnesk rétttrúnaðarkirkja, en KFUM í Úkraínu starfar innan þeirrar kirkjudeildar.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica