Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
Föstudagshátíð 2.HG
Föstudagshátíð 2.HG
Dvergarnir koma að Mjallhvíti þar sem hún liggur í dái eftir að hafa etið eitrað epli
Mynd 10 af 10
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

Fyrsta föstudagshátíðin hjá 1. M

20.11.2007

Föstudaginn 16. nóvember var föstudagshátíð hjá yngsta stiginu. Í þetta sinn var það 1. M sem steig á stokk með ýmis skemmtiatriði.
Hófst hátíðin á því að nemendur sungu lagið um Hafið bláa til að ná góðri stemmingu í salinn og tókst það með ágætum.
Í tilefni að degi íslenskrar tungu fluttu börnin ljóðið, Ég á þessi föt eftir Jónas Hallgrímsson sem flestir þekkja undir nafninu Buxur, vesti, brók og skór. Að því loknu var leikið og sungið ljóðið um Ömmu og draugana en amman lét ekki svipta sig svefninu sama hver draugurinn var. Einnig var fluttur góður brandari og endað með spurningakeppni í anda Útsvars og skemmtu nemendur sér hið besta. Í lokin fluttu nemendur lagið um Vináttuna og skoruðu á 2. HL að sjá um næstu hátíð þann 30. nóvember.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica