Þemavika í 8. – 10. bekk
Nú er þemavika hjá 8. - 10. bekk og umfjöllunarefnið er hippatímabilið og 7. áratugurinn. Í upphafi fengu allir að horfa á myndina Hárið og einnig American graffity. Nemendur fengu að velja sér hópa eftir áhugasviði hvers og eins. Allir fá einnig einn tíma í dansi en Eyrún Unnur kennir öllum grunnsporin í Jive. Tónlistarhópur er starfandi og æfa tónlistarmennirnir lög frá tímabilinu og ætla að flytja afraksturinn á föstudaginn. Hópur nemenda fjallar um Víetnamstríðið. Hópurinn vinnur í því að segja frá stríðinu og lýsa því. Bílahópurinn vinnur í því að finna bíla frá þessum tíma. Fjölmiðlahópurinn gefur út blað og tekur myndir. Tískuhópurinn vinnur í því að skreyta stofurnar, ein er skreytt eins og á hippatímanum og hin er eins og á sixties-tímabilinu. Ólympíuhópurinn sér um að afla upplýsinga um ólympíuleikana í Munchen 1972.
Fjölmiðlahópurinn
Sýning
Á föstudaginn er sýning kl: 11:30-13:30 og allir boðnir velkomnir. Hægt verður að kaupa vöfflur og kaffi/djús á hóflegu verði. Við vonumst til að sjá sem flesta.
Nemendur og starfsfólk í 8. - 10. bekk
Grunnskóla Hornafjarðar



