Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
themav
themav
Mynd 1 af 10
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

Þemavika

23.11.2007

Undanfarna þrjá daga hefur verið þemavika í elstu bekkjum Grunnskólans þ.e.a.s 8.-10. bekk. Meginþemað var 7. áratugurinn í máli og myndum, söng og gleði. Sýning á vinnu nemenda í þemavikkunni var í dag föstudaginn 23. nóvember. Fjölmargir heimsóttu okkur á milli kl. 11:30-13:30 til að skoða afrakstur vikunnar. Hljómsveit flutti nokkur lög, nemendur sýndu Jive og einnig var tískusýning í gangi. Auk þess voru aðrir með sýningar eins og t.d. Ólympíuhópurinn, hópur sem fjallaði um Víetnamstríðið, bílahópurinn og fjölmiðlahópurinn gaf út blað í gær. Nokkrir nemendur sáu um að baka vöfflur og selja og runnu þær út eins og heitar lummur
Þökkum við öllum kærlega fyrir komuna.
Nemendur og starfsfólk 8. - 10. bekkjar Grunnskóla Hornafjarðar.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica