Föstudagshátíðir í Nesjaskóla
Auk þess voru lesarar og söngvarar í leikverkinu. Einnig voru fluttir nokkrir valdir brandarar, sungið og að lokum skoruð krakkarnir á kennarana að halda næstu hátíð.
Kennararnir brugðust vel við og héldu sína hátíð nú á föstudaginn. Þema sýningarinnar var tískusýning en þar fór Þorvaldur á kostum í gulum kjól og háhæluðum skóm. Kennararnir sungu nokkur jólalög og að lokum var slegið upp balli þar sem allir dönsuðu og trölluðu. Því miður náðist þessi sýning ekki á filmu



