Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
Faduhringurinn
Faduhringurinn
Fæðuhringurinn

Heilsueflandi grunnskóli

11.01.2008

Um 300 manns hlýddu á fyrirlestra Fríðu Rúnar Þórðardóttur næringarfræðings í Sindrabæ í gær. Fríða Rún sem kom hingað á vegum grunnskólans og foreldrafélagsins hélt sex fyrirlestra og samtals mættu á fyrirlestrana um 300 manns. Á fyrirlestrunum lagði hún áherslu á að halda réttu jafnvægi á milli hreyfingar, hollustu og hugarfars. Þessir þrír þættir væru allir jafn mikilvægir þegar kemur að heilbrigðu líferni og fór hún yfir ýmis atriði sem geta hjálpað okkur við að halda þessu jafnvægi. Þannig ræddi hún um hvaða þættir hafa áhrif á hreysti okkar og lagði þá sérstaka áherslu á fæðuval okkar, vökvabúskap líkamans, hreyfingu, svefn, hugarfar og að forðast tóbak og áfengi. Fríða Rún ræddi við starfsfólk skólans og nemendur í 6. -10. bekk en þeir fengu bæklinga með sér heim. Í dag fengu nemendur í 1. - 5. bekk bækling með sér heim til að færa foreldrum því það eru jú þeir sem ráða mestu um það hvaða matur er á boðstólum á heimilinu. Á fyrirlestur sem ætlaður var íþróttafólki og áhugafólki um íþróttir og heilsurækt mættu um fimmtíu manns og hið sama er að segja um fyrirlestur sem ætlaður var foreldrum.

Í grunnskólanum er áhugi á að gera skólann að heilsueflandi skóla og er heimsókn Fríðu Rúnar einn þáttur í því. Næsta mánudag er skipulagsdagur í skólanum og því frí hjá nemendum en meirihluti þess dags verður tekinn undir geðvernd sem einnig getur verið hluti af heilsueflingu í skólanum. Á þeim degi er annarsvegar lögð áhersla á fræðslu sem tengist geðheilsu okkar og er þannig hluti af vinnuvernd en hinsvegar er verið að efla færni starfsfólks í að vinna með börnum sem eiga við geðraskanir að stríða. Dagskrá þessa dags byggir að miklu leyti á því sem fram fór á fræðsludegi um geðvernd í Nýheimum 23. nóvember síðastliðinn. Sá dagur var einstaklega vel heppnaður en fáir starfsmenn skólanna komust þangað þar sem skólastarf var í fullum gangi.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica