Forföll í skólanum
Eins og margir foreldrar hafa orðið varir við hefur verið mikið um forföll hjá kennurum og starfsmönnum skólans að undanförnu og oft hefur verið erfitt að manna þessi forföll svo vel sé. Orsök forfallanna eru margvísleg en fyrst og fremst eru það þó veikindi og námsleyfi og hefur þetta mest bitnað á unglingastiginu að undanförnu. Það er neyðarúrræði að þurfa að senda nemendur heim eða láta þá vera án kennara hluta af kennslustund en þó hefur það komið fyrir þegar ekki hafa verið kennarar til að manna kennsluna.
Það er vissulega áhyggjuefni þegar ástandið er svona en því miður er staðan þannig hér um þessar mundir að ekki tókst að fullmanna skólann í haust. Margir kennarar eru að vinna meira en þeir ætluðu að gera og í haust voru bekkjardeildir í tveimur árgöngum sameinaðar sökum manneklu. Einnig erum við með hátt hlutfall leiðbeinenda í kennslu og þó að það sé afskaplega gott að þeir skuli vera að afla sér kennsluréttinda og aðrir kennarar að afla sér framhaldsmenntunar þá kostar það töluverðar fjarvistir sem stundum getur reynst erfitt að manna. Nú er t.d. að ljúka tveggja vikna námslotu í KHÍ þar sem flestir fjarnemar hafa þurft að mæta. Veikindi er erfitt að ráða við. Lengri veikindi eru öllum vinnustöðum erfið og alltaf koma pestir sem leggjast jafnt á starfsmenn skóla eins og aðra. Sem betur fer eignast starfsfólk skóla enn þá börn og af eðlilegum orsökum verða stundum mannabreytingar á miðjum vetri af þeim orsökum.
Staðan í ráðningamálum yfirleitt veldur okkur hinsvegar áhyggjum og því miður virðist ástandið sem einkennt hefur marga leikskóla undanfarin ár, þá sérstaklega á Suðvesturhorninu, vera farið að gera vart við sig í grunnskólum landsins. Það er ekki nóg að hafa skólaskyldu ef ekki fæst fólk til að manna grunnskólann.
Þrátt fyrir að erfiðri viku sé að ljúka þá erum við bjartsýn og teljum að ef engin óvænt veikindi gera vart við sig þá verði grunnskólinn nokkurnveginn fullmannaður á mánudaginn.
Við vonum að nemendur, starfsmenn og fjölskyldur þeirra eigi góða helgi og njóti þess að vera úti í því fallega vetrarveðri sem spáð er um helgina.



