Dansskemmtun í íþróttahúsinu
Lögð er áhersla á að nemendur vinni bug á snerti- og hreyfifælni ásamt því að skemmta sér saman. Það má heldur ekki gleyma því að danskennsla er stór liður í forvörnum. Föstudaginn 22. febrúar var foreldrum boðið upp á að sjá afraksturinn og tókst vel til.



