Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
17. júní hátíðarhöld á Höfn
17. júní hátíðarhöld á Höfn
17. júní hátíðarhöld á Höfn

Uppeldi til ábyrgðar

Almennur fræðslufundur fyrir foreldra í

08.04.2008

Mánudaginn 14. apríl kl 12 verður haldin almennur fræðslufundur fyrir foreldra í Sindrabæ.
Á fundinum ætlar Guðlaug Erla Gunnarsdóttir að fara yfir helstu þætti uppeldiskenningarinnar Uppeldi til ábyrgðar og skýra út á hvað hún gengur. Eins og foreldrum er kunnugt hefur starfsfólk grunnskólans unnið að því að tileinka sér þessa kenningu í vetur og ætlar að halda því áfram. Mikilvægt er fyrir foreldra að vita út á hvað þessi hugmyndafræði gengur þannig að þeir geti stutt við þá vinnu sem fram fer í skólanum og nýtt sér kosti þessarar kenningar heima við því þeir eru vissulega margir.

Guðlaug Erla Gunnarsdóttir er aðstoðarskólastjóri í Álftanesskóla á Álftanesi en þar hefur verið unnið eftir kenningum Uppeldis til ábyrgðar í nokkur ár. Meistaraprófsverkefni Guðlaugar Erlu fjallar um Uppeldi til ábyrgðar og er hún einn af brautryðjendum stefnunnar hér á landi. Auk þess að vera með fræðslufund fyrir foreldra hittir Guðlaug Erla stýrihópinn sem leiðir vinnuna með Uppeldi til ábyrgðar í skólanum og verður með almennan fund fyrir starfsfólk skólans.

Á fundinum munu 10. bekkingar selja samlokur, kaffi og sódavatn svo foreldrar geta borðað á meðan á fundinum stendur

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica