Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
SAFT-malting
SAFT-malting
SAFT málþing

Saft málþing - þú ert það sem þú gerir á netinu

16.04.2008

SAFT, vakningarverkefni um jákvæða og örugga netnotkun barna og unglinga á Netinu og tengdum miðlum, stendur fyrir opnum málþingi í Nýheimum mánudaginn 21. apríl kl. 20:00. Markmið málþingsins er að draga annars vegar fram sýn nemenda og hins vegar foreldra og kennara á helstu kostum og göllum Netsins. Einnig verður áhersla lögð á að fá fram framtíðarsýn hópanna varðandi örugga og ánægjulega notkun og þróun Netsins. Þátttakendur vinna fyrst í tveimur málstofum en málþinginu lýkur með sameiginlegri málstofu nemenda, foreldra og kennara þar sem gerð verður grein fyrir niðurstöðum.

Málþingið er öllum opið og þátttökugjald er ekkert. Nemendur á aldrinum 11 - 16 ára eru sérstaklega boðnir velkomnir ásamt foreldrum sínum og kennurum. Mikilvægt er að þessir aðilar styðji við forvarnir í netöryggismálum.

SAFT netbodskort (PDF)  

 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica