Ferðalag í Öræfin
Við lögðum á stað klukkan 8:30 og vorum rosalega spennt. Fyrsta stopp var hjá Jökulsárslóni síðan var keyrt að Hofgarði þar sem við gistum. Þegar við komum að Hofgarði fórum við inn með dótið okkar og síðan var okkur keyrt í Skaftafell. Þar hlustuðum við á Regínu þjóðgarðsvörð og Hafdísi aðstoðarþjóðgarðsvörð. Svo var farið í langa göngu inn í Bæjarstaðarskóg, þar stoppuðum við á mjög fallegum stað og borðuðum nestið okkar. Við fengum öll heitt kakó en Þórgunnur var með prímusa, pott og ketil, það var rosalega hressandi. Eftir klukkutíma hlé við að borða og leika okkur í fossinum fórum við að hlusta á Hafdísi, hún sagði okkur frá trjánum og mörgu öðru fræðandi. Það tók okkur um fimm tíma að labba fram og til baka um fimm leytið lögðum við á stað aftur upp í Hofgarð. Þar sem margir fóru út í fótboltakeppni en aðrir spiluðu á spil. Um kvöldið var haldin kvöldvaka þar sem söngvakeppni var haldin og sýnt var eitt töfrabragð og leikrit. Klukkan hálf tólf voru allir að fara upp í rúm og orðnir dauðþreyttir eftir daginn.
Daginn eftir voru allir vaktir um sjö og tími var komin til þess að rýma húsið og borða morgunmat. Um níu voru allir komnir uppí rútu á leið aftur í Skaftafell. Þar var okkur skipt í hópa sem fóru á mismunandi stöðvar. Á stöðvunum vorum við að læra að mæla vatn, tré og rústir, klipptum tré, tálguðum spýtur, teiknuðum myndir, skoðuðum Selbæ og reyndum að veiða síli en það gekk ekkert það vel. Hafdís sýndi okkur Selbæinn og þar sáum við mjög fallegar og litríkar hænur sem nokkrir voru hræddir við. Hafdís sýndi okkur líka torfhlöðu sem var öll byggð úr steinum og spýtum. Um hádegið fengum við pylsur og djús. Svo vorum við keyrð upp í Hofgarð og tókum dótið okkar og létum það inn í rútu og lögðum af stað heim. Um sex leytið vorum við komin aftur á Höfn þreytt en mjög glöð. Allir voru mjög ánægðir með ferðina og okkur fannst þetta mjög skemmtilegt og fræðandi.
Sigríður Þórunn og Trausti í 7. bekk



