Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
Samundur_frodi_001_a_vef
Samundur_frodi_001_a_vef
Mynd 1 af 3
1 2 3

Sæmundur fróði, eftir Pétur Eggertz

28.04.2008

Í morgun bauð foreldrafélag grunnskólans öllum nemendum í leikhús í Sindrabæ. Þessi leiksýning var um Sæmund fróða. Sæmundur vildi verða fróður maður. Sæmundur var leikinn af Pétri Eggertz. Hann fór til útlanda til að læra latínu af því að fróðustu menn kunnu latínu. Hann fór fyrst til Noregs og spurði um næsta skóla, en hann var í Þýskalandi. Svo fór hann til Danmerkur og spurði aftur til vegar. Konan sagði honum að ganga til Þýskalands. Þá var honum bent til Svartaskóla, fór hann í skólann og sat þar við lærdóm í þrjú ár. Hann plataði kölska tvisvar eftir það áður enn hann fór heim. Eftir að hann uppgvötaði að preststarfið á Odda var laust sagði hann að ef kölski kæmi sér þurrum heim mætti kölski eiga hann, á leiðini las hann í saltaranum og þegar nær var komið að Íslandi barði hann kölska í hausin með saltaranum að arna. Kölski missti stjórn og Sæmundur rennblotnaði. Hann gekk á land og fór heim á Odda. Þar varð hann prestur og lék alloft á kölska síðan. Á dánarbeðinu notaði hann sína síðustu krafta sína til að hrella burt púka og flugur.
Sýningin var vel uppsett. Það voru bara þrír leikarar en margar persónur. Þau skiftu um persónur og umhverfi á stuttum tíma. Leikarar í þessari leiksýningu voru Pétur Eggertz sem var Sæmundur, Bjarni Ingvarsson sem lék faðir Sæmundar, kölska o.fl., svo var það Alda Arnarsdóttir sem lék móðir Sæmundar og þýsku konuna o.fl. og leikstjóri var Þórhallur Sigurðsson.
Magnús Ágúst og Þorlákur Helgi 7.R

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica