Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
Lego_-_Snorri_102_a_vef
Lego_-_Snorri_102_a_vef
Skyldi þetta nú virka hjá okkur...
Mynd 3 af 4
1 2 3 4

Ameríkuferð Ísjakanna

Úr dagbók Ameríkufaranna

09.05.2008

29. apríl.
Við flugum til Reykjavíkur kl.11:40 og þaðan til Minneapolis. Þegar við komum þangað náðum við nú að villast í nokkra hringi og fengum þá að skoða Minneapolis aðeins, síðan tékkuðum við okkur inn á hótelið, borðuðum á Applebee's og fórum síðan að sofa.

30. apríl.
Við fórum öll saman í Mall of America. Þar fórum við í sædýrasafn og sáum marga skrautlega fiska og önnur sjávardýr. Sumir fóru í tívolí en aðrir voru bara að versla. Eftir þetta fórum við aftur á Applebe´s.

1. maí
Við vorum valin til þess að taka þátt í myndatöku fyrir allar auglýsingar á mótinu og það var mjög gaman og svo fóru við í viðtal fyrir háskólann í Minnesota. Svo var opnunar athöfnin og þar voru liðin kynnt. Öll liðin sögðu takk fyrir á sínu tungumáli, svo sögðu stjórnendurnir frá aðalatriðunum og viðburðunum mótsins. Opnunarathöfnin fór fram í karla körfuboltahöllinni en heimastöðvarnar okkar voru í kvenna körfuboltahöllinni. Eftir opnunathöfnina var vísinda- og eðlisfræðisýning sem var mjög fræðandi og skemmtileg.

2. maí.
Í dag var aðalkeppnin þá kepptum við í brautinni, sýndum rannsóknarverkefnið, sögðum frá róbotinum og hvernig undirbúnings vinnan fór fram í okkar hóp. Við kynntumst helling af skemmtilegu fólki og fengum að vita meira um hópavinnu verkefnið sem er á morgun en með okkur í hóp eru lið frá Massachusetts, Wisconsin og Montana. Við erum búin að dreifa helling af bæklingum um Ísland og fólk er búið að vera mjög áhugasamt um landið okkar og að læra að segja lítil orð á Íslensku. Einnig gekk okkur mjög vel í brautinni og erum að skora í kringum 300 stig sem við erum mjög ánægð með. Svo var kvöldvaka og þar sungum við lag á íslensku og slógum auðvitað í gegn þar ;)
Á morgun er áfram haldandi keppni en núna erum við að fara að hvíla okkur og fara að sofa því við þurfum að vakna mjög snemma.

3. maí.
Á laugardags morguninn kláruðum við að keppa með okkar róbot og síðan hófst samvinnuverkefni þar sem við kepptum með liðum frá Montana, Massachusetts og Wisconsin. Það var gaman að hitta krakkana úr liðunum og okkur gekk ágætlega í verkefninu. Síðar um daginn fórum við á verðlaunaafhendingu og lokaathöfn þar sem öll liðin fengu medalíu og svo var tilkynnt sigurliðin í hverri grein. Eftir þetta fórum við strax á kvöldvöku þar voru hoppukastalar, pizzupartý síðan var DJ og dansað fram á kvöld.

4. maí.
Á sunnudeginum var frídagur og allir gerðu það sem þeir vildu með foreldrum sínum. Seinna um daginn hittumst við á hótelinu og fórum niður í miðbæ. Þar festumst við í lyftu en eftir sutt samtal við 911 þá komumst við niður, og fórum síðan á Hard Rock Cafe.

5.maí.
Á mánudeginum vöknuðum við snemma til þess að fara í vatnsleikjagarðinn en þegar við förum þangað var hann lokaður og við fórum í dýragarðinn og seinna um daginn í vísindasafn. Um kvöldið fórum við í heimsókn/mat til Deb Mans og fjölskyldu. Deb var ein af aðalskipulegendunum mótsins. Það var mjög gaman, við kveiktum varðeld, gerðum smors og sungum útilegusöngva. En fullorðna fólkið sat inni, svo sungum við Bahama fyrir alla og nokkur önnur íslensk lög við undirleik Heiðars á píanó.

6. maí.
Á þriðjudeginum fóru sumir í motorcrossbúð og hinir fóru í Gold Country sem er minjagripabúð fyrir Minnesota íþróttaliðin. Síðan fórum við að labba upp að Minehaha fossinum og þaðan út á flugvöll þar sem við biðum í 5 tíma, við fórum í loftið kl. 19:20 á staðartíma.

7. maí.
Á miðvikudeginum lentum við kl. 6.20 á Íslandi og fórum þá í fríhöfnina þar sem allir versluðu mikið af nammi og svo til Reykjavíkur í verkalýðsíbúð sem við vorum í þegar við kepptum í FFL í Reykjavík.
Þar hvíldum við okkur og fengum okkur pizzu. Síðar um daginn fórum við í sund í Salalauginni í Kópavogi og fórum síðan útá flugvöll þar sem RÚV tók viðtal við okkur. Þegar við flugum heim var of mikil þoka á flugvellinum á Höfn og þurftum við þá að lenda á Egilsstöðum og fórum svo með rútu heim til Hafnar á leiðinni á Höfn.

Þetta var mjög skemmtileg ferð og við viljum þakka öllum sem studdu okkur.

Kveðja Ísjakarnir

Á www.horn.is/lego er fullt af góðum myndum úr ferðinni sem þeir Heiðar og Snorri tóku

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica