Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
IMG_1811
IMG_1811
Kynjavera úr undirdjúpum Indlandshafs
Mynd 1 af 7
1 2 3 4 5 6 7

Leiksýning í Mánagarði, Smargagðsdýpið mikla

23.05.2008

Í dag, föstudag, fóru nemendur Hafnar- og Nesjaskóla á leiksýningu hjá hinu alþjóðlega Hypno leikhús frá Berlín. Sýningin var í boði Listahátíðar Reykjavíkur og Listvinasjóðs Hornafjarðar Sýningin heitir Smargagðsdýpið mikla, eða "Um Marvintýri Purbijan Ranjan Biswas og gríðarlega forvitnisáráttu hans". Í verkinu var boðið uppá sérstaka blöndu af tónlist, brúðuleik og sjónlist í sýningunni. Fylgst var með sjávarskjaldbökunni Purbijan í leit hans að því hvað leynist á botni hafsins. Á leið sinni kynnist hann mörgum skrítnum og áhugaverðum dýrum og er fylgt eftir af tígrishákarlinum dularfulla Sigurkarli Margleypi hinum Þriðja. Eftir því sem kafað er dýpra, verður hafið myrkara og verurnar yfirnáttúrulegri. Leiksýningin skartar sjómannatónlist og lögum frá öllum heimshornum í einstökum búningi. Hypno Leikhúsið samanstendur af hópi listamanna sem hafa sameinast í áhuga sínum á sögum og tónlist fyrir börn. Þessi alþjóðlegi hópur samanstendur af fjórum tónlistarmönnum og tveimur brúðulistamönnum / sjónlistamönnum frá fimm mismunandi löndum.


Hér kemur umsögn nemenda um leikritið.

"23. maí var farið í Mánagarðinn á leikrit um Hafdjúpið mikla. Fjallað um var litla skjaldböku sem kafaði lengst á botn hafsins. Hitti hann margar og skrítnar verur sem búa á botni hafs og þar í kríng. Leikararnir komu frá Þýskalandi og unnu frá tvö í nótt. Krakkarnir í Grunskólum Hornarfjarðar komu á þetta leikrit og allir skemmtu sér mjög vel."

Selma Björt og Birna Luna í 4 bekk

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica