Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
jolasamv_hepp_a_vef
jolasamv_hepp_a_vef
Úr Heppuskóla
Mynd 1 af 3
1 2 3

Starfskynning og skyndihjálp fyrir nemendur í 10. bekk

28.05.2008

Vikuna 13. - 16. maí vorum við nemendur í 10. bekk ekki í venjulegri kennslu í skólanum. Þessir dagar skiptust niður á fyrirlestra frá fyrirtækjum og skyndihjálp hjá honum Guðbrandi Jóhannssyni. Þriðjudagurinn fór í það að fyrst kynnti Guðmundur fyrir okkur það sem við vorum að fara að gera. Siðan var haldið út í Galdur ehf. og Sigurður og Heiðar kynntu fyrir okkur starfsemi fyrirtækisins og sögu. Þar fórum við líka í myndatöku og útkomuna mátti sjá framan á Eystrahorni þá vikuna. Svo fórum við í skyndihjálp sem var mjög fræðandi. Lögreglan átti svo seinasta fyrirlestur dagsins eða hann var meira svona fundur eða spjall.
Miðvikudaginn byrjuðum við svo í Sindrabæ þar sem hún Hjördís frá Afli kom og sagði okkur frá réttindum okkar sem vinnandi fólki, síðan tók við fyrirlestur og skoðaunarferð um Skinney - Þinganes sem var bæði fræðandi og kalt. Svo fórum við aftur í skyndihjálp og kynntumst aðeins henni Önnu (endurlífgunardúkkunni) og miðvikudagurinn endaði svo hann Sindri frá SÍF eða Sambandi íslenskra framhaldsskóla. Hann fór yfir fjölbreyttar námsleiðir sem eru í boði fyrir okkur að loknu grunnskólanámi og kom á óvart hversu margar leiðir eru í boði.
Á fimmtudeginum kom Björg og sagði okkur sögu Menningarmiðstöðvarinnar og hvað sé gert þar eins og t.d. bókasafn, skjalasafn ofl. Svo tók við skyndihjálp með Guðbrandi og Önnu og síðast komu Magga og Anna María frá Sparisjóði Hornafjarðar og töluðu við okkur um sparnað og reikningaval.
Föstudagurinn byrjaði svo á því að Stefán Ólafsson hélt fyrirlestur um starfsemi bæjarfélagisns og síðasta skyndihjálpin og svo vorum við komin í helgarfrí.

Guðlaug Margrét Björnsdóttir 10. bekk

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica