Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
Hopurinn_i_eyjum_a_vef
Hopurinn_i_eyjum_a_vef
7. bekkur kominn til Eyja

7. bekkingar hafa það gott í Vestmannaeyjum

29.05.2008

Eins og Hornfirðingar vita þá reið sterkur jarðskjálfti yfir Suðvesturland nú rétt fyrir kl. fjögur. Jarðskjálftinn sem var 6. 1 á Richter átti upptök sín suðvestur af Selfossi. Í Vestmannaeyjum fannst skjálftinn vel sérstaklega hjá þeim sem voru innandyra. Flestir 7. bekkingarnir okkar sem eru í skólaferðalagi í Vestmannaeyjum voru hinsvegar úti við og sumir urðu hans ekki einu sinni varir.
Það væsir því ekki um krakkana okkar sem una sér vel í Eyjum í blíðskapar veðri. Það óhapp átti sér reyndar stað í morgun að Sigríður okkar Þorvarðardóttir ökklabrotnaði þegar hún var að spranga en það var nú jarðskjálftanum alvega óviðkomandi. Það er vel búið að henni í Eyjum eins og öðrum en í fyrramálið kemur hópurinn með Herjólfi á fasta landið og annað kvöld verða þau komin heim.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica