Það er leikur að læra
Síðust daga skólans er oftar brugðið út af hefðbundnu skólastarfi en gengur og gerist yfir veturinn. Sérstaklega á það við um yngri bekkina. Þá er farið að hlýna úti og þolinmælin oft orðin lítil við bóknámið. Þrátt fyrir að bókinni sé sleppt hætta nemendur ekki að læra heldur verður námið meira verklegt og félagslegt. Það er aldrei of mikil áhersla lögð á að þetta nám er jafn mikilvægt og allt annað nám og á þessum dögum eru margir nemendur að vinna sína stærstu sigra.
Síðust dag hefur verið farið í ýmsar vettvangsferðir, kartöflur settar niður, gróðursett og fleira og fleira. Í gær fór 6. bekkur t.d. niður á bryggju og þar fengu allir að róa á sjómannadagsbátunum Góu og Þorra. 5. bekkur æfði sig í hjólaþrautum og fór í hjólreiðatúr út í Ósland og svona mætti lengi telja. Auk Unicef hlaupsins í dag var farið í þrennskonar ratleiki á miðstiginu sem þjálfuðu nemendur í stærðfræði, samfélagsfræði, samvinnu og fleiru. Þannig læra börnin í gegnum leik sem örugglega er árangursríkasta námsaðferðin fyrir flesta og frábært þegar hægt er að koma henni við.



