Nemendaráð Grunnskóla Hornafjarðar
Innan grunnskólans er starfrækt nemendaráð sem er skipað fulltrúum nemenda í 6. ? 10. bekk. Í 6. ? 10. bekk kjósa nemendur sér einn fulltrúa í hverjum bekk í nemendaráðið. Fyrsti fundur vetrarins var svo haldinn í dag og skiptu þá nemendur með sér verkum.
Formaður er Óskar Þór Ingvarsson og varaformaður Halldór Karl Þórsson. Ritarar eru Þórhildur Sigurðardóttir og Sólveig V. Sveinbjörnsdóttir og aðrir meðstjórnendur eru Felix Þór Gíslason, Tómas Ásgeirsson, Ívar Örn Valgeirsson, Arnar Valgeirsson, Katrín María Sigurðardóttir og Þorkell Ragnar Grétarsson.
Hlutverk nemendaráðs er að vinna að félagslífi nemenda, hagsmuna- og velferðarmálum þeirra. Formaður og varaformaður eru einnig fulltrúar nemenda í skólaráði Grunnskólans.



