Nýnemadagur
Nemendur 10. bekkjar sáu um vígslu nýnema inn í elsta stigið. Um morguninn var 8. bekkingum bannað að sitja í mjúkum sófum setustofunnar. Fram að hádegi var þetta það eina sem busarnir þurftu að ganga í gegnum, en eftir hádegi byrjuðu herlegheitin. 10. bekkingar sáu um að farða, greiða og klæða busana í búninga sem samanstóð af ruslapokum og hárneti. Síðan var þrammað í íþróttahúsið og busarnir sungu sérvalin lög eins og í leikskóla er gaman og stubbarnir. Í íþróttahúsinu þurftu þeir að tilbiðja 10. bekkingana og leika listir sínar. Farið var í ýmsa leiki, spurningakeppni, fílafótbolta og fl. Að lokum var knattspyrnuleikur á milli 10. bekkinga og kennara. Auðvitað unnu kennararnir leikinn 4:0 (að vísu voru 10. bekkingar bundnir saman tveir og tveir, en það þarf nú ekki að koma fram).
Nýnemaballið var haldið í félagheimilinu Sindrabæ. 9. bekkur sá um að skreyta salinn, vera með sjoppu það sem seldir voru drykkir og súkkulaði og halda uppi skemmtun með skemmtiatriðum og tilnefningum. Busar 2008 voru: Siggerður Aðalsteinsdóttir og Felix Þór Gíslason, einnig voru fleiri tilnefningar. Maturinn var frá Kaffihorninu þar sem boðið var uppá kjúkling og franskar. Það var svaka ball það sem Heimir (DJ Boot) byrjaði tónlistina, Bjarni Friðrik og co tóku við af honum. Og svo komu Hörður, Siffi og Jóhann Bergur og voru afganginn af ballinu og enduðu þetta mjög vel.
Lukka 9. R og Berglind Steinþórsdóttir



