Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
Namskeid_med_Magna_001_a_vef
Namskeid_med_Magna_001_a_vef
Af námskeiði með Magna Hjálmarssyni
Mynd 1 af 3
1 2 3

Nýtt starfsfólk á námskeiði

08.10.2008

Í dag situr nýtt starfsfólk í Grunnskóla Hornafjarðar á námskeiði með Magna Hjálmarssyni um Uppeldi til ábyrgðar. Á námskeiðinu er farið í grundvallaratriði uppbyggingarstefnunnar sem byggir á því að að skapa skilyrði til að börn geti lært af mistökum sínum, snúið aftur til hópsins og vaxið við hverja raun.

Eitt af því sem rætt er um eru fimm ólíkar leiðir við agastjórnun. Þessar leiðir eru;
1. Að refsa.
2. Að vekja sektarkennd.
3. Að nota fortölur og gylliboð.
4. Að nota reglufestu.
5. Að nota uppbyggingu.

Öll þekkjum við fyrstu þrjár aðferðirnar en erum ekki eins góð í síðustu tveimur. Uppbyggingarstefnan gengur m.a. út á að flétta á milli reglufestu og uppbyggingar en markmiðið er að enda á uppbyggingu ef hægt er. Uppbyggingarstefnan byggir á stórum hluta á því að fólk sem ætlar að tileinka sér hana vinni með sjálfan sig og sínar hugmyndir og það tekur langan tíma.

Í grunnskólanum er það yfirlýst stefna að vinna að framgangi ubbyggingarstefunnar. Skólareglurnar eru gerðar út frá þessari stefnu og smám saman vonumst við til þess að skólabragurinn einkennist af henni.

Það eru 18 starfsmenn sem sitja námskeiðið að þessu sinni. Vegna þess hefur orðið smá röskun á fyrirkomulagi kennslunnar en það var þó fremur lítið og kom ekki að mikilli sök.  Vonandi skilar þessi röskun sér í enn betra skólastarfi þegar fram í sækir. 


 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica