Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
3.D_fostudagshatid_019vef
3.D_fostudagshatid_019vef
Úlfurinn versla við kaupmanninn
Mynd 6 af 7
1 2 3 4 5 6 7

Föstudagur í Nesjaskóla

27.10.2008

Á síðasta föstudag var það 3. D sem sá um að skemmta okkur með leik og söng á hinni hefðbundnu föstudagshátíð skólans. Krakkarnir hófu dagskrána á því að stelpurnar sungu lagið Do re me, næst voru fluttir brandarar af ýmsu tagi. Hekla, Tinna, Díana og Inga Sóley sömdu dans og sýndu. Helgi, Óliver, Aðalsteinn, Sigurður og Bjarmi sungu lagið Hífum í bræður, voða flottir strákar, skiptust á að syngja einsöng, Því næst komu stelpurnar með blokkflauturnar og spiluðu og sungu lagið Lífið líkar mér. Loka atriði hátíðarinnar var hið bráðskemmtilega leikrit úlfurinn og kiðlingarnir ellefu sem byggt er á hinni þekktu sögu um úlfinn og kiðlingana þrjá. Þar stóðu krakkarnir sig aldeilis vel, Helgi Steinarr fór með hlutverk kaupmannsins á horninu, Sigurður Guðni lék bakarameistarann, Díana lék geitarmömmu, aðrir í bekknum léku kiðlingana 11 og Ólafur Björn fór á kostum í hlutverki úlfsins. Afar skemmtilegt leikrit sem uppskar mikinn hlátur og gleði. Takka fyrir skemmtunina krakkar.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica