Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
Legóhópurinn
Legóhópurinn
Legóhópurinn

Klakarnir keppa í Lego

08.11.2008

Þegar þetta er skrifað eru Klakarnir lið Grunnskóla Hornafjarðar að ljúka fyrstu umferð í keppninni Lego hönnunarkeppni 2008 í Öskju við Sturlugötu í Reykjavík. Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu á netinu fyrir þá sem hafa áhuga. Úrslita er að vænta klukkan 16 í dag en. Liðið hefur sína eigin bloggsíðu þar sem þau hafa haldið út dagbók um verkefnið og hvernig það hefur gengið fyrir sig s.l. mánuði. Allir eru sigurvegarar.

FIRST LEGO ® keppninni er ætlað að upphefja árangur. Allir mótast af þeirri reynslu. Dómarar læra af keppendum, leiðbeinendur læra af liðssveitum og við lok hvers verkefnis þyrstir nemendurna í meiri fróðleik. Þetta snýst ekki um að smíða vélmenni -vélmennin smíða fólkið og er hugmyndafræðin að baki sú að nemendur læri að vinna saman og taka þátt í nýsköpun og framleiðslu á einhvers konar tæki sem leysir þarfir sem samfélaginu eru nauðsynlegar. Til þess að lausnin sé sem best heppnuð þurfa eftirfarandi þættir að vera í lagi:

  • Hugmyndin gengur upp
  • Hugmyndafræðin er gagnsæ og þátttakendur geta útskýrt hvernig tæknin virkar og sýnt þannig djúpan skilning á viðfangsefninu
  • Lausnin er aðlaðandi og skemmtileg

Lausnarferlið reynir á ólíka hæfni þátttakenda, þannig að allir hafa hlutverki að gegna (allir geta eitthvað, enginn getur allt)

FLL býður sérhverju barni möguleika til þátttöku, óháð áhugasviði þess. FLL hvetur börnin til að prófa og kanna hugsun og nálgunaraðferðir vísindagreinanna, sína hvert ár, og jafnvel útvíkka þær eða gjörbreyta þeim, hvort sem er með sköpun, tækni eða rannsóknum
Hér er hægt að nálgast tengil inn á keppnina og hér er hægt að komast á bloggsíðu Klakanna.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica