Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
HPIM0334vefur
HPIM0334vefur
Alexandra Winther Gjøveraa og Amna Hasecic

Nemendur Grunnskóla Hornafjarðar skrifa ritdóma.

17.12.2008

Nú í jólaösinni ætla nemendur á mið- og efstastigi grunnskólans að gerast spekingar og skrifa ritdóma um nýútkomnar bækur fyrir börn og unglinga. Ritdómarnir verða birtir á heimasíðu grunnskólans fram að jólum og lengur ef þurfa þykir. Mikill áhugi er á lestri þessa dagana og þá ekki hvað síst á nýjum bókum hjá nemendum skólans. Nýafstaðin heimsókn rithöfunda á öll skólastig kynnti vel undir þeim áhuga og þá hefur opnun bókasafnsins í Heppuskóla mælst sérlega vel fyrir og auðveldar nemendum þar aðgengi að bókum. Þeir nemendur sem ríða á vaðið með fyrstu ritdómana sem birtast eru Alexandra Winther Gjøveraa Amna Hasecic

Verndargripurinn frá Samarkand
Bókin Verndargripurinn frá Samarkand eftir Jonathan Straud er fyrsta bókin í Bartimæusar-þríleiknum. Hún gagntekur huga ungra lesenda og sumir segja meðal annars að hún sé arftaka Harry Potter. Hún er algjör snilld og mjög skemmtileg fyrir þá sem hafa áhuga af bókum um galdra, galdrakarla, djöfla og púka ættu að lesa þessa bók.
Ég get sagt það að þessi bók var ekki fyrir minn smekk en ég hafði samt gaman af henni, og held að hún sé meira fyrir börn en fullorðna nema þá sem hafa mjög mikin áhuga af góðum og fjörugum ævintýrabókum eins og þessari og hafa ekki en þá vaxið upp úr þeim. Bókin fjallar um Nathaniel strák sem vekur upp 5.000 ára gamla veru sem heitir Bartimæus. Nathaniel fær Bartimæusi það verkefni að ræna frá Simon Lovelace galdrakarli sem ber höfuð og herðar yfir aðra töframenn sökum kunnáttu sinnar og grimmdar. Nathaniel vill að Bartimæus ræni Verndargripi frá Samarkand af Lovelace af þvi að hann niðurlægði Nathaniel opinerlega þá ákveður Nathaniel að hefna sín.
Amna Hasecic

Eragon -Brísingur
Brísingur er þriðja bókin í bókaflokkinum um Eragon og búist er við einni annarri bók sem væri þá lokabókin. Christopher Paolini hefur lífgað við undraheim með drekum, álfum, dvergum og mönnum auk annarra vera þar sem örlög þeirra samantvinnast.
Eragon er frábær bók sem höfðar bæði til barna og fullorðna, þó þær séu í lengri kantinum.
Þeir sem byrja á þessari sögu eiga ekki eftir að geta lagt frá sér bókina fyrr en þeir verða búnir með hana og eiga þá eftir að bíða spenntir eftir þeirri næstu.
Í þessari bók er Eragon nýkominn úr baráttunni miklu á Brunasléttu og fær þá upp á móti sér gömlu vinina frá æskuheimili sínu, Carvahall. Þarf hann þá að leggja strax upp í miklar hættufarir um alla Alagesíu að nýju með drekanum sínum, Safíru, og nýjum vinum. Eragon og Safíra neyðast til að sverja enn fleiri eiða og verða því að fara með enn meiri gát. Þessi bók er afar áhugaverð lesning og ég mæli jafn sterklega með henni fyrir alla þá sem hafa áhuga á baráttu, hulduverum og töfrum.
Alexandra Winther Gjøveraa

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica