112 dagurinn
Nemendur í 1.-4. bekk ásamt leikskólanemendum mættu á 112 daginn og fengu að skoða tæki og tól björgunarsveitarinnar, slökkviliðsins, lögreglunnar og auðvitað sjúkrabílinn. Þeir sem tóku á móti okkur voru duglegir að leyfa öllum að prófa, létu væla í sírenum og sýndu hvernig eldar eru slökktir með aðstoð Þorvaldar og nokkurra kennara. Ár hvert fer fram getraun meðal 3. bekkinga á landinu á vegum Landsambands slökkviliðs- og sjúkrafluttningamanna og í ár vildi svo skemmtilega til að nemandi í 3. bekk Grunnskóla Hornafjarðar fékk verðlaunin en það var Hekla Natalía Heimisdóttir. Við þökkum gestgjöfum okkar fyrir móttökurnar.



