Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
Skólakeppni stóru upplestrarkeppninnar
Skólakeppni stóru upplestrarkeppninnar
Arnar, Alexander, Ívar, Agnar, Kristófer, Ragnar og Heiðdís,  það vantar Darra og Martein á myndina

Skólakeppni stóru upplestrarkeppninnar

03.03.2009

Skólakeppni Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í Nýheimum fimmtudaginn 26. febrúar.   Þar lásu 12 nemendur bæði bundinn og óbundinn texta.  Eftir standa 9 nemendur sem taka þátt í lokakeppninni sem fer fram í Hafnarkirkju 11. mars kl. 16:00.  Keppendur verða 11 talsins, 9 frá Grunnskóla Hornafjarðar og 2 nemendur frá Grunnskóla Djúpavogs.

Þessir nemendur komust áfram:

Agnar Jökull Imsland Arason, Alexander Snær Stefánsson, Arnar Freyr Valgeirsson, Darri Snær Nökkvason,  Heiðdís Anna Marteinsdóttir, Ívar Örn Valgeirsson, Kristófer Örvar Ögmundsson, Marteinn Eiríksson og Ragnar Magnús Þorsteinsson.

Á myndina vantar Darra Snæ og Martein.

 

 

 

 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica