Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
skakkennsla
skakkennsla

Skákkennsla um helgina fyrir nemendur Grunnskólans

06.03.2009

 

Davíð R. Ólafsson skákkennari heimsótti alla bekki grunnskólans í dag og kynnti þessa frábæru íþrótt skák fyrir nemendum.  Og hann gerði meira en það, hann bauð öllum nemendum sem hefðu áhuga á ókeypis skáknámskeið um helgina.  Námskeiðið verður í Heppuskóla og er öllum nemendum  velkomið að koma, bæði til að horfa á og kynna sér skák eða til að fara á skáknámskeiðið hjá honum.

Nemendur eru beðnir um að koma á eftirfarandi  tímum 

1.– 5. bekkur   kl. 10:00-12:00 á laugardag

6. – 10. bekkur kl. 13:00- 15:00 á laugardag

 

Á sunnudaginn kl. 10:00 verður svo skákmót fyrir þá sem hafa áhuga. 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica