Klakarnir lagðir af stað til Kaupmannahafnar
Nú eru Klakarnir lagðir af stað í keppnisferðina til Kaupmannahafnar þar sem þau munu taka þátt í Evrópumótinu í Legó Childrens Climate Call. Klakarnir sem eru 10 nemendur í 7. bekk fljúga út í fyrramálið ásamt fararstjórum og fylgdarliði en keppnin hefst á föstudagsmorgun og stendur fram á sunnudag. Eins og Hornfirðingum er kunnugt unnu þessir nemendur landskeppnina á Íslandi First Lego Leagu og þar með keppnisrétt í Danmörku. Nú hafa þau betrumbætt hraðabrautina sína og snarað verkefninu á ensku og því reiðubúin í slaginn í Danmörku þar sem keppendur frá 35 löndum mætast. Þetta er óneitanlega stór stund, ekki bara fyrir keppendurna heldur okkur öll í Grunnskólanum því við erum svo sannarlega stolt af því að eiga fulltrúa í þessari keppni. Við munum birta fréttir frá keppninni um leið og þær berast en hægt er að fá nánari upplýsingar um mótið á slóðinni childrensclimatecall.org



