Góðir gestir í heimsókn...
Í síðustu viku heimsótti nemendur innan úr Nesjaskóla Hafnarskóla. En þeir munu næsta vetur sækja nám sitt í Hafnarskóla vegna þeirra breytinga sem verða húsnæði skólans.
Nemendur þurftu sjálfir að koma sér í skólann og heim. Það ríkti spenna á heimilum nemenda í 1. til 3. bekk þegar þeir hófu nám sitt í þessu ,,nýja“ húsnæði. En óhætt er að segja að allt hafi gengið vel og eldri nemendur tekið vel á móti gestunum. Skipt var á milli árganga hverjir tækju á móti bekk. Farið var í skipulagða leiki og skólastofur heimsóttar. Þetta var skemmtileg tilbreyting á skólastarfinu og tókst þetta vel í alla staði.
Mikilvægt er fyrir yngri nemendur að kynna sér skólahúsnæðið og mun vorskólinn fyrir tilvonandi 1. bekk verða í Hafnarskóla í vor í stofum 3 og 4...



