Kiwanis gefur hjólreiðahjálma.
Í liðinni viku komu þeir með hjálma handa börnunum, voru með fræðslu og sýndu hvernig á að stilla hjálmana en það er mjög mikilvægt að hjálmarnir séu rétt stilltir. Ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi þess að börn og fullorðnir noti hjólahjálma því alvarleg höfuðmeiðsli verða ekki aftur tekin. Ung börn á hjóli eiga í fullu fangi með að hafa vald á hjólinu og ná því ekki alltaf að hafa gát á umhverfinu í leiðinni.



