Heimsókn starfsfólks Grunnskólans á Hellu
Í gær kom starfsfólks Grunnskólans á Hellu í heimsókn til að kynna sér hvað við værum að gera markvert í skólanum hér. Auk þess að sýna þeim Heppuskóla þá sögðum við þeim frá nokkrum þáttum skólastarfsins, s.s. uppeldi til ábyrgðar, Need verkefninu sem skólinn er aðili að og legó- og nýsköpunarvinnunni.
Það hefur tíðkast undanfarin ár að starfsfólk grunnskóla fari á nokkura ára fresti í skólaheimsóknir erlendis. Vegna kreppunnar hefur dregið úr þessum heimsóknum en í staðinn heimsækir starfsfólk skóla nú skóla innanlands.
Við erum að sjálfsögðu afskaplega ánægð að fá heimsóknir hingað til okkar þar sem við erum ekki í alfaraleið og sjaldgjæft að fá svona stóra hópa í einu.
Í næstu viku eigum við von á heimsókn frá Grunnskólanum á Hvolsvelli.



