Í skólanum er skemmtilegt að vera, líka eftir skóla
Miklar breytingar hafa átt sér stað í skólastarfi frá fyrra ári og ber þar hæst að skólahald í Nesjaskóla hefur verið lagt niður. Þess í stað eru allir nemendur núna í Hafnar- og Heppuskóla. Yngri árgangar eru í Hafnarskóla svo og Kátakotið, en það er skólasel fyrir börn sem dvelja í skólanum eftir að hefðbundinni kennslu lýkur.
Kátakot er til húsa í lausri skólastofu fyrir framan aðalbyggingu skólans og eru þar nú um 20 börn. Í Kátakoti er margt brallað eins og við má búast. Kúrekar og índíanar eru sígildir svo og litun allskyns mynda sem sýnir að listamaður blundar í öllum. Ekki má gleyma frábærri skólalóð með nýjum glæsilegum leiktækjum sem börnin geta nýtt sér að vild og á þessum tíma dags er lítil samkeppni svo biðin er engin eftir að komast í " eftirlætisgræuna“.
Allir fá síðdegishressingu og nú er hún í nýjum , glæsilegum matsal skólans. Þar er vel tekið til matar síns og hún Erla sem þar ræður ríkjum bakaði meira að segja kryddbrauð fyrir okkur einn daginn sem við kunnum sannarlega vel að meta og átum upp til agna.!
Þjónusta Kátakots er mjög sveigjanleg og starfsmenn sjá um að minna börnin á æfingatíma sem þau kunna að sækja í íþróttahúsi síðdegis, nú eða sækja tónlistartíma í Tónskólann.



