Auður Lóa með gull í Nýsköpunarkeppninni
Auður Lóa Gunnarsdóttir gerði sér lítið fyrir og hneppti gullið í Nýsköpunarkeppni grunnskóla. Forseti Íslands afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn í Grafarvogskirkju um helgina en Auður sigraði í flokki sem fjallaði um landbúnað. Alls fengu 15 keppendur verðlaun og má sjá meira um keppninga á heimasíðu hennar nkg.is.
Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda, NKG, er keppni í nýsköpun fyrir alla aldurshópa grunnskólans um allt land. Markmið NKG er að gera einstaklingnum grein fyrir sköpunargáfu sinni og þroska hana í gegnum vinnu með eigin hugmyndir. Efla og þroska frumkvæði nemandans og styrkja þannig sjálfsmynd hans. Efla nýsköpunarstarf í grunnskólum og vekja athygli á hugviti barna í skólum og atvinnulífi. Keppnin var haldin í fyrsta skipti árið 1991 og er nú haldin í 18 sinn.
Á heimasíðu keppninnar eru þessi orð til ungs fólks "Njótið þess að vera skapandi og leyfið huganum að dreyma. Fjöldinn allur af verkefnum framtíðarinnar munu vera óleyst þegar þið vaxið úr grasi. Við þurfum fólk eins og ykkur til að aðstoða okkur við lausnir þeirra. Finnið ykkur farveg til að tala um hugmyndir ykkar og leitið ávallt svara við spurningum ykkar, til dæmis, hjá foreldrum, kennurum, ættingjum, vinum og jafnvel á veraldarvefnum.Gangið menntaveginn á þeirri braut sem ykkur finnst skemmtileg og áhugaverð og sem ekki síst fyllir ykkur eldmóði. Vegna þess að það leiðir ykkur að störfum þar sem þið skarið fram úr, og verðið jafnframt hamingjusöm.
Til hamingju með daginn"
 copy.jpg)


