Smartís í legókeppni
Legókeppnin (FLL) fór fram nú um helgina í Keili á gamla varnarsvæðinu í Keflavík. Grunnskóli Hornafjarðar sendi auðvitað lið til keppni. Liðið í ár kallar sig Smartís og stóð sig með prýði. Verðlaun voru veitt í eftirfarandi flokkum; besta lausn í þrautabraut, besta hönnun á vélmenni, besta skemmtiatriðið, besta rannsóknarverkefnið, besta dagbókin (ferilskráningin), besta liðsheildin og svo að sjálfsögðu FLL meistarar 2009.
Skemmst er frá því að segja að Smartís var tilnefnt til verðlauna í öllum flokkum og hlaut bikar fyrir bestu liðsheildina. Það sem klikkaði var vélmennið sjálft og keppnin á brautinni, þar komumst við ekki í úrslit. Vélmennið fékk allt í einu sjálfstæðan vilja og fór ekki að öllu leyti eftir skipunum liðsmanna og því fór sem fór.
Nafnið Smartís kom þannig til að þema keppninnar í ár var SMART MOVE (snjallar samgöngur) og ís stendur fyrir allan ísinn í umhverfi okkar, Vatnajökul og Jökulsárlón.
Krakkarnir unnu rannsóknarverkefni um hættuna á því að við hér á Höfn lokuðumst inni vegna þess að vegurinn færi í sundur í Hvalnesskriðum, við Jökulsárlón eða á Skeiðarársandi. Þau fengu upplýsingar hjá starfsmönnum vegagerðarinnar hér á Höfn og fluttu fyrirlestur um málið.
Liðið hefur haldið úti heimasíðu á undirbúningstímabilinu og er slóðin smartis-lego.blogcentral.is.
Liðið Róbóbóbó frá Salaskóla varð FLL meistari í ár og keppir fyrir Íslands hönd í Tyrklandi í vor og óskum við þeim góðs gengis.
Eiríkur Hansson liðsstjóri Smartís er afar stoltur af sínu liði og segir þau hafa staðið sig vel og verið skólanum sínum til sóma.


